Kaupþing banki hefur aukið hlut sinn í norska félaginu Storebrand í 7,82%, segir í frétt Dow Jones.

Kaupþing keypti 7.048.844 hluti á genginu 71 norskar krónur og á Kaupþing nú 19.526.658 hluti í fyrirtækinu, segir í fréttinni.

Í gegn um dótturfélagið Kaupthing Norge, jók bankinn hlut sinn í Storebrand í 4,6% í janúar síðastliðnum.