Kaupþing banki hefur ákveðið að hækka vexti á nýjum Íbúðalánum um 0,25 prósentustig frá 6. júlí 2007. Í tilkynningu bankans kemur fram að ákveðið hefur verið að hækka fasta vexti á nýjum Íbúðalánum Kaupþings úr 4,95% í 5,20% frá og með 6. júlí 2007.

Síðasta vaxtabreyting á Íbúðalánum Kaupþings var í desember 2006 en frá þeim tíma hafa verðtryggðir vextir Íbúðabréfa (HFF) á markaði hækkað umtalsvert. Þessi vaxtahækkun nú er til að fylgja þeirri þróun eftir. Vaxtabreytingu þessari er einnig ætlað að mæta þeim mikla mun sem myndast hefur á óverðtryggðum og verðtryggðum vöxtum í kjölfar lækkandi verðbólgu.

Vaxtahækkunin nú tekur aðeins til nýrra lánveitinga og gildir ekki fyrir þegar veitt lán þar sem þau lán eru með fasta vexti út allan lánstímann segir í tilkynningunni.