Vextir á verðtryggðum innlánum hækka um allt að 0,50 prósentustig. Þannig hækka vextir á verðtryggðum Bústólpareikningi úr 6,50% í 7,00%. Vextir á Framtíðarreikningi og Lífeyrisbók hækka úr 6,60% í 7,10%.
Auk þess hækka breytilegir kjörvextir verðtryggðra skuldabréfalána um 0,50 prósentustig, úr 8,00% í 8,50% segir í tilkynningu félagsins.

Hækkun á verðtryggðum vöxtum er gerð í ljósi þess að raunstýrivextir Seðlabankans, miðað við verðbólgu, hafa hækkað mikið. Þessi þróun kemur vel fram í hækkun á ávöxtunarkröfu skammtíma verðtryggðra íbúðabréfa að undanförnu.

Vextir á íbúðalánum Kaupþings breytast ekki en þeir eru 5,20%.