Kaupþing banki hefur hætt við áætlanir um stofnun um 70 milljarða íslenskra króna fasteignaþróunarsjóðs vegna skorts á áhuga af hálfu fjárfesta að koma að sjóðnum.

Kaupþing hugðist fá með sér fjárfesta í Kaupthing Oppurtunistic Real Estate Fund og leggja í sjóðinn um 20 milljarða af hlutafé sem bankinn á í fimm fasteignaverkefnum, þar á meðal um 60% hlut í lúxusíbúðaverkefni í Beverly Hills sem CPC Group, sem er í eigu Christian Candy, er með í þróun.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í frétt á vef Property Week.

Kaupþing staðfesti við Viðskiptablaðið að hætt hefði verið við stofnun sjóðsins og talsmenn bankans segja að ástæðan sé breyttar markaðsaðstæður.

Í frétt Property Week segir að sjóðurinn hafi átt að vera hluti af fasteignaráðgjöf Kaupþings sem fjárfesti í verkefnum með frumkvöðlum.

_____________________________________

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu í dag. Áskrifendur geta lesið blaðið á pdf-formi hér á vefnum. Þeir áskrifendur sem ekki hafa sótt um aðgangsorð til að lesa blaðið á vefnum geta gert það hér .