Kaupþing hefur leigt Apple 18.000 ferfeta skrifstofuhúsnæði við útibú sitt í London, við One Hanover Street.

Samkvæmt frétt Porpertyweek um málið er um að ræða 4 ára framleigusamning hjá Kaupþing sem tekur 85 pund á hvert ferfet í leigu, eða samtals rúmlega 1,5 milljónir punda.

Að sögn starfsmanns Kaupþings í London er ekki um það að ræða að Kaupþing sé að minnka við starfsemi sína í London, heldur leigði bankinn stærra húsnæði en hann hafði not fyrir áður. Í stað þess að láta húsnæði standa autt hafi verið ákveðið að framleigja hluta húsnæðisins til Apple.