Kaupþing í Svíþjóð tilkynnti í dag að bankinn hefði selt dótturfélag sitt Kaupthing Finans AB til sænska bankans Resurs Bank.

Frá þessu er greint á vef Reuters en þar kemur fram að Kaupthing AB, sem nýlega fékk lán hjá sænska Seðlabankanum, hafi verið til sölu í nokkurn tíma.

Hjá Kaupthing AB starfa um 30 manns í Svíþjóð, Finnlandi og Noregi.

Kaupverðið er ekki gefið upp.