Eignarhlutur Kaupþings banka hf. í norska trygginga- og fjármálafyrirtækinu Storebrand ASA svarar nú til 20,00% af hlutafé félagsins eða sem nemur 49.963.821 hlutum. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Kaupþing hefur ákveðið að Storebrand verði fært sem hlutdeildarfélag í reikningum bankans, frá og með 14. maí 2007. Afkoma Storebrand mun því hér eftir verða bókuð hlutfallslega í gengum rekstrarreikning Kaupþings. Til þessa hefur eignarhlutur bankans í Storebrand verið færður á gangvirði og dregur þessi breyting því úr markaðsáhættu bankans.