Greiningardeild Kaupþings banka hefur uppfært verðmat sitt á Össuri í kjölfar uppgjörs félagsins fyrir þriðja ársfjórðung.

Verðmatsgengið lækkar í 117,3 krónur á hlut úr 118,3 og vænt verð (e. target price) lækkar í 130 úr 133. Gengi Össurar var 119,5 við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

?Gengi félagsins hefur lækkað töluvert undanfarið og mælum við með því að fjárfestar auki við sig í Össuri (e. accumulate)," segir greiningardeildin.