Kaupþing í London hefur sett saman fjárfestingadeild sem mun koma að kaupum á verslanakeðjunni Jane Norman ásamt Baugi, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins.

Heimildamenn blaðsins segja að bankinn ætli sér stærri hlut í keðjunni en hann hefur áður gert í slíkum viðskiptum. Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri fjárfestinga Baugs í Bretlandi, kvaðst ekki geta tjáð sig um það hvort fjárfestingadeildin kæmi að kaupunum. Ekki náðist í Ármann Þorvaldsson hjá Kaupþingi í London í gær.

Sjá nánar Viðskiptablaðið í dag.