Kaupþing og SPRON hafa ákveðið að taka upp viðræður um mögulega sameiningu félaganna.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar er gert ráð fyrir að viðræðunum verði lokið á um 4 vikum.

Sameining félaganna er háð samþykki hluthafafundar SPRON, stjórnar Kaupþings, Fjármálaeftirlitsins, Samkeppniseftirlitsins og lánveitenda félaganna.