Kaupþing  hefur fengið leyfi til að opna útibú í alþjóðlegu fjármálamiðstöðinni Katar (e. Qatar) (QFC). Kaupþing er fyrsti norræni bankinn til að fá starfsleyfi í þessu umdæmi.

Í september tilkynnti bankinnum að hafa fengið leyfi til að opna útibú í alþjóðlegu fjármálamiðstöðinni Dubai (DIFC).

Upphaflega mun Kaupþing einbeita sér að því að sinna fyrirtækjaráðgjöf á svæðinu sem og að útvega þjónustu á sviði einkabankastarfsemi. Þetta er annað starfsleyfi Kaupþings í Miðausturlöndum en fyrir hefur bankinn starfsleyfi í aljóðlegu fjármálamiðstöðinni Dubai (DIFC). Umar Ali, framkvæmdastjóri Kaupþings í Miðausturlöndum mun stýra báðum útibúunum.