Kaupþing hefur rætt við Fjármálaeftirlitið um aðkomu Kaupþings að uppstokkun Glitnis.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kaupþingi þar sem segir að samráð hafi verið haft um þetta við stjórnvöld og að málið verði rætt frekar næstu daga.

Eins og fram kom í gærkvöldi hefur Fjármálaeftirlitið tekið yfir starfsemi Glitnis eftir að hafa í gærmorgun tekið yfir starfsemi Landsbanka.