Dótturfélag Kaupþings banka hf.[ KAUP ], Kaupthing Singer & Friedlander („KSF“) hefur selt rekstur sinn á sviði tryggingaiðgjaldafjármögnunar til Close Brothers á lítils háttar yfirverði miðað við bókfært verð (e. net asset value), segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Með sölunni verður losað um lausafé hjá KSF sem nemur rúmlega 100 milljónum punda (jafnvirði um 16 milljarða króna). Jafnframt hefur KSF nánast hætt rekstri á sviði hrávöruviðskiptafjármögnunar og hafa 97% af upphaflegu eignasafni, sem nam tæplega 350 milljónum punda (jafnvirði um 55 milljarða króna), verið greiddar upp.

KSF greindi í febrúar frá síðasta þættinum í endurskipulagningu rekstrarins í Bretlandi í kjölfar kaupa Kaupþings á Singer & Friedlander árið 2005. KSF gerði þá grein fyrir því að bankinn hygðist hætta starfsemi á sviði eignafjármögnunar og hrávöruviðskiptafjármögnunar, auk þess sem gerðar hefðu verið skipulagsbreytingar innan fyrirtækjasviðs í Bretlandi

Unnið hefur verið að því að hætta starfsemi á sviði eignafjármögnunar frá því sú tilkynning birtist og hafa margir hugsanlegir kaupendur lýst áhuga á starfseminni í heild eða að hluta. Bankinn vinnur nú að því að losna úr rekstri fyrirtækjaeignafjármögnunar og eignafjármögnunar á sviði heilbrigðisþjónustu og gerir ráð fyrir því að senda nánari upplýsingar um stöðu þess á næstu mánuðum.

„Lausafjárstaða okkar styrkist nú enn frekar í kjölfar þess að bankinn hættir í rekstri hrávöruviðskiptafjármögnunar og tryggingaiðgjaldafjármögnunar og í ljósi þess að innlánaafurð okkar á netinu, Kaupthing Edge, hefur gengið mjög vel. Við erum því áfram bjartsýn á stöðu rekstrarins í Bretlandi,“ segir Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kaupthing Singer & Friedlander  í tilkynningunni.