Kaupþing banki hefur ráðið Hugh McAlister til starfa á skrifstofu bankans í London, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins.

McAlister starfaði áður hjá þýska fjárfestingabankanum Dresdner Kleinwort Wasserstein sem einn af tveimur yfirmönnum verðbréfaviðskipta bankans.