Greiningardeild Kaupþings banka hefur í kjölfar uppgjörs þriðja ársfjórðungs hjá Actavis uppfært afkomuspá og verðmat sitt fyrir félagið.

?Sjóðstreymisgreining gefur verðmatsgengið 69 krónur á hlut og höldum við tólf mánaða markgengi okkar óbreyttu í 78 krónum á hlut. Mælum við áfram með kaupum á bréfum í Actavis,? segir greiningardeildin.

?Uppgjörið var að mestu í takt við væntingar Greiningardeildar en þó var hagnaður fjórðungsins yfir okkar væntingum. Að okkar mati var uppgjör félagsins gott og styrkir jákvæða sýn okkar á framtíð félagsins,? segir greiningardeildin.