Kaupþing vísar á bug orðrómi um að bankinn hafi vísvitandi reynt að stuðla að veikingu krónunnar í viðskiptum sínum á gjaldeyrismarkaði. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Kaupþing sendi frá sér í dag.

Yfirlýsing Kaupþings hljóðar svo í heild sinni: „Kaupþing hefur margoft gefið upp í tengslum við birtingu uppgjöra að gjaldeyristengdar eignir eru umfram gjaldeyristengdar skuldir til þess að verja eiginfjárhlutfall bankans fyrir veikingu íslensku krónunnar. Einnig er send skýrsla daglega til Seðlabanka Íslands sem sýnir gjaldeyrisviðskipti bankans við viðskiptavini sína. Með þessu móti ríkir fullt gegnsæi á gjaldeyrisviðskiptum Kaupþings með íslensku krónuna. Kaupþing vísar algerlega á bug orðrómi þess efnis að bankinn hafi vísvitandi reynt að stuðla að veikingu krónunnar í viðskiptum sínum á gjaldeyrismarkaði.“