Stjórn Icelandair Group hefur ákveðið að hrinda í framkvæmd endurkaupaáætlun sem aðalfundur félagsins heimilaði 10. mars síðastliðinn, segir í fréttatilkynningu frá félaginu.

Áætlunin veitir stjórninni heimild til að kaupa á 18 mánuðum allt að 10% af eigin hlutum, en hámarksfjöldi hlutanna sem áætlunin nær til er að nafnverði 114 milljón hlutir.

Samsvarar það 2,28% af útgefnum hlutum í félaginu, en fyrir á félagið 25 milljón hluti eða 0,5% af útgefnum hlutum. Gildir áætlunin til og með 8. september 2017 og mun Virðing hf. hafa umsjón með framkvæmd hennar, og verða ákvarðanir um tímasetningu og kaup þannig gerð óháð félaginu.

„Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags munu að hámarki nema 4.679.224 hlutum eða sem nemur 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í janúarmánuði síðastliðnum," segir í tilkynningunni.

„Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki nema hæsta verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í Kauphöllinni, hvort sem hærra er.

Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.“