Frumtak hefur fest kaup á hlut í Gogogic ehf fyrir 150 milljónir króna.

Gogogic var stofnað árið 2006 til að þróa tölvuleiki.   Það sérhæfir sig í frumlegri leikjahönnun, gerð smærri tölvuleikja og framleiðslu margmiðlunarefnis fyrir vefinn. Einnig sinnir fyrirtækið hugmyndasmíði og markaðsmálum fyrir viðskiptavini sína.

„Gogogic er í hópi stærstu leikjafyrirtækja á Íslandi og því áhugaverður fjárfestingakostur fyrir Frumtak“ er haft eftir dr. Eggerti Claessen, framkvæmdastjóra Frumtaks, í tilkynningu.

„Gogogic hefur náð frábærum árangri í framleiðslu og hönnun tölvuleikja ásamt því að vera í fararbroddi nýrra samtaka fyrirtækja í íslenskum leikjaiðnaði.  Við væntum mikils af fyrirtækinu og það verður sérstaklega áhugavert að sjá það ná árangri í að selja leiki sína en þeir hafa hlotið góða dóma og viðurkenningar.  Þarna eru mikil tækifæri sem hægt er að nýta með því fjármagni sem fyrirtækið hefur fengið með aðkomu Frumtaks."

„Það er ljóst að aðkoma Frumtaks mun gera félaginu kleift að láta reyna almennilega á vörur sínar á markaði, byggja upp þær pípur sem þarf til erlendrar markaðssetningar og koma leikjum fyrirtækisins almennilega á framfæri. Einnig er þetta stuðningur við frekari leikjaþróun og þá felst í því töluverð viðurkenning, að fá Frumtak að borðinu á þessum tíma ”, er haft eftir Jónasi Antonssyni, framkvæmdastjóra Gogogic, í tilkynningu.

Frumtak er samlagssjóður í eigu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, sex af stærstu lífeyris­sjóðum landsins og þriggja banka. Frumtak fjárfestir í nýsköpunar­fyrirtækjum sem þykja vænleg til vaxtar og útrásar.  Markmið Frumtaks er að byggja upp öflug fyrirtæki sem geta verið leiðandi á sínu sviði og um leið skilað góðri ávöxtun til fjárfesta.

Í fréttatilkynningu segir að Frumtak fjárfestir í fyrirtækjum sem eru komin af klakstigi og er áskilið að fyrir liggi ítarlegar viðskiptaáætlanir.