Sigurður Helgason, stjórnarformaður Icelandair Group, keypti í dag rétt rúma þrjár milljónir hluta í félaginu fyrir samtals 23,7 milljónir króna. Fram kemur í flöggun frá Icelandair Group, að Sigurður eigi 10 milljón hluti í flugrekstrarfélagið. Hann keypti bréfin á genginu 7,86 krónur á hlut.

Miðað við gengi hlutabréfa félagsins í dag, 7,95 krónur á hlut, nemur verðmæti bréfa hans 79,5 milljónum króna.