Þóroddur Stefánsson, athafnamaður, hefur fest fest kaup á Höllinni í Vestmannaeyjum. Í Höllinni hafa farið fram ýmsar skemmtanir í gegnum tíðina. Í frétt Eyjafrétta um málið segir að Þóroddur hafi keypt Höllina af Íslandsbanka.

„Ég er ekkert farinn að hugsa þetta en sé fyrir mér að reksturinn sem nú er í húsinu verði þar áfram. Ég sé mikla möguleika í þessu á hverju strái í Vestmannaeyjum sem eru fallegasti staður landsins. Ferðamenn sem hingað koma skipta milljónum og þeim hlýtur að fjölga sem ekki vilja missa af dýrðinni í Eyjum. Svo hugsar maður alltaf hlýlega til æskustöðvanna og verður gaman að taka þátt í því þegar ferðamönnum fjölgar. Sem vonandi verður með nýrri ferju á næsta ári,“ er haft eftir honum í frétt Eyjafrétta.