FÍ fasteignafélg slhf. hefur samið um kaup á fasteigninni Flatahrauni 12 Hafnarfirði. Iðnskólinn í Hafnarfirði er með langtímaleigusamning um húsnæðið og verður þar því áfram. Húsið er 4.450 fermetrar að stærð.

Samningurinn er gerður með fyrirvara um áreiðanleikakönnun FÍ og samþykki stjórnar félagsins að henni lokinni. Gert er ráð fyrir afhendingu og afsali á fyrsta fjórðungi næsta árs.

Skammt er síðan tilkynnt var að tilboði FÍ fasteignafélags í Bernhöftstorfuna hefði verið tekið.