Steindór Sigurgeirsson, aðaleigandi Storms Seafood, hefur keypt húsnæðið sem hýsir Kaffi Reykjavík. Rekstur Kaffi Reykjavíkur verður áfram í höndum Þórðar Bachman og Hafsteins Häsler en þeir reka einnig Geysi bistro og Grillhúsið.

Steindór kaupir húsnæðið ásamt Jason Wittle í gegnum félag þeirra, Fjelagið.hf. Steindór segir að þeir hafi ekki verið að kaupa fleiri eignir hér landi. „Við teljum að þetta sé góð fjárfesting til lengri tíma og við viljum koma húsinu í gott horf. Það þarf viðhald og stefnan er að það verði eitt af fallegustu húsunum á svæðinu,“ segir Steindór.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum tölublöð hér að ofan.