Stjórn Faxaflóahafna sf. hefur samþykkt drög að samningi fyrirtækisins og Reykjavíkurborgar um að borgin kaupi alls 18.432 fermetra lands norðan Mýrargötu. Samkvæmt áætlunum borgarinnar á að rísa á landinu íbúðasvæði og greiðir borgin rúmlega hálfan milljarð króna fyrir kaupin.

Drög að rammaskipulagi fyrir svæðið liggja þegar fyrir og þykja kaup borgarinnar því eðlilegt framhald áður en Reykjavíkurborg gengur frá nauðsynlegum breytingum á aðalskipulagi og hafnarmörkum og hefst svo væntanlega handa við framkvæmdir, gangi allt samkvæmt áætlun.