Flugfélag Íslands hefur keypt tvær Dash-8 farþegaflugvélar. Vísir greinir frá. Kaupverð er um einn og hálfur milljarður króna. Félagið seldi eldri Dash vél í sinni eigu til að fjármagna kaup á annarri vélinni. Hin er greidd með tryggingabótum sem fengust fyrir flugvél sem eyðilagðist í lendingu á Grændlandi í vetur, að því er Vísir greinir frá.
Nýju vélarnar eru nú í breytingu í Kanada, til að auka flugþol þeirra. Markmið Flugfélag Íslands er að fjölga áætlunarferðum milli Íslands og Grænlands.