Gengið hefur verið frá samningum um kaup Geysis Green Energy ehf. á um 20% hlutafjár í kanadíska jarðhitafyrirtækinu Western GeoPower Corporation (WGP).

Alls kaupir Geysir liðlega um 40 milljón nýja hluti í félaginu og er hlutafjáraukningin liður í að fjármagna jarðvarmavirkjun sem fyrirtækið vinnur nú að á Geysissvæðinu í Kaliforníu. Geysissvæðið er stórt jarðhitasvæði í Sonomasýslu í norðanverðri Kaliforníu. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Heildarkaupverð hlutarins í WGP er um 600 milljónir íslenskra króna og með kaupunum fær Geysir mann í stjórn fyrirtækisins. Kenneth MacLeod forstjóri Western GeoPower segir að með hlutafjáraukningunni, sem nú hafi verð gengið frá, sé að mestu lokið fjármögnun á borun og byggingu fyrirhugaðrar jarðhitavirkjunar á Geysissvæðinu. ?Það er sérstakur ávinningur fyrir okkur að fá Geysi að félaginu og þekking þeirra og samstarf mun styrkja okkur í þeim verkefnum sem við vinnum að,? segir Kenneth MacLeod í tilkynningu.

Ásgeir Margeirsson forstjóri Geysis segir að kaup Geysis á hlut í Western GeoPower falli mjög vel að áformum fyrirtækisins um að vera virkur þátttakandi í stærsta orkumarkaði heimsins sem sé í Bandaríkjunum. ?Við hlökkum til að taka þátt í að efla og styrkja Western GeoPower til þátttöku og þróunar á frekari verkefnum vestanhafs í framtíðinni,? segir Ásgeir Margeirsson.

Western GeoPower er kanadískt jarðhitafyrirtæki með höfuðstöðvar í Vancouver. Félagið er skráð á TSX markaðinn í Torornto. Fyrirtækið einbeitir sér að vinnslu endurnýtanlegrar jarðvarmaorku til að mæta ört vaxandi þörf fyrir raforku á vesturströnd Bandaríkjanna og Kanada. Í dag vinnur fyrirtækið að tveimur megin verkefnum á þessu sviði. Annars vegar að áður nefndri virkjun á Geysissvæðinu í Kaliforníu, sem ráðgert er að hefji raforkuvinnslu snemma árs 2010 og verður um 30 megawött. Hins vegar jarðhitavirkjun í South Meager í bresku Columbíu í Kanada og gera áætlanir ráð fyrir að þar geti risið allt að 100 megawatta virkjun innan 10 ára.

Geysi Green Energy er fjárfestingarfélag um sjálfbæra orkuvinnslu sem stofnað var af FL Group, Glitni og VGK-Hönnun í janúar 2007. Tilgangur þess er að fjárfesta í verkefnum tengdum sjálfbærri orkuframleiðslu víðs vegar um heim. Geysir Green Energy einbeitir sér að tækifærum í nýtingu jarðvarma, fjárfestingum í þróun og byggingu jarðvarmaorkuvera og annast yfirtöku á jarðvarmaorkuverum í eigu orkufyrirtækja. Félagið tekur þátt í einkavæðingu orkufyrirtækja þar sem tækifæri gefast og stefnir að því að verða leiðandi á sínu sviði í heiminum.