Launavísitala í febrúar hækkaði um 0,5% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 3,6%. Vísitala kaupmáttar launa í febrúar 2010 er 104,8 stig og lækkaði um 0,7% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa lækkað um 3,4%. Aðeins hefur dregið úr tólf mánaðar kaupmáttarlækkun frá því í nóvember. Níu mánuðina þar á undir lækkaði vísitala kaupmáttar um 6-8% milli ára.