Launavísitala í apríl 2015 er 503,2 stig og hækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 5,2%. Kemur þetta fram á vefsíðu Hagstofunnar.

Vísitala kaupmáttar launa í apríl 2015 er 120,9 stig og hækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 3,7%.