Launavísitala í janúar 2009 er 355,7 stig og hækkaði um 0,6% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 7,5%.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Þá kemur jafnframt fram að vísitala kaupmáttar launa í janúar er 109 stig og er óbreytt frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa lækkað um 9,4%.

Sjá nánar á vef Hagstofunnar.