Samkvæmt vísitölu VR hækkaði kaupmáttur um 4,5% í september 2015 borið saman við sama tímabil 2014. Litlar vísbendingar eru um að þróun kaupmáttar sé úr takti við almenna efnahagsþróun.

Þetta kemur fram í nýjasta Efnahagsyfirliti VR . Í yfirlitinu fjallar hagfræðingur VR um helstu lykiltölur íslensks efnahagslífs og spár greiningaraðila um þróunina næstu misseri.

Í yfirlitinu segir að nokkur kraftur sé í íslensku efnahagslífi. Landsframleiðsla hafi aukist um 4,5% á fyrstu 9 mánuðum ársins 2015, samanborið við fyrstu 9 mánuði ársins 2014.

Í yfirlitinu er því spáð að hagvöxtur á næstu þremur árum verði um og yfir 3% á ári, gangi spár greiningaraðila eftir.

Verðbólga í nóvember mældist 2% og var minni en gert var ráð fyrir. Sem fyrr var hún knúin áfram af hækkun húsnæðisverðs. Án húsnæðis mældist verðbólgan 0,3%.

Þá var atvinnuleysi 3,8% í október 2015 samanborið við 5% í október 2014. Hlutfall starfandi mældist 78% og hækkar aðeins um 0,2 prósentustig miðað við sama tímabil í fyrra.