Ráðstöfunartekjur heimilageirans, samkvæmt uppgjöri þjóðhagsreikninga, jukust árið 2017 um 9,9% frá fyrra ári. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar . Ráðstöfunartekjur á mann jukust um 7,4% milli ára og kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann jókst um 5,5%.

Ráðstöfunartekjur heimilanna má skilgreina sem samtölu launatekna, eignatekna, tilfærslutekna, reiknaðs rekstrarafgangs vegna eigin eignarhalds, þar með talið íbúðarhúsnæðis, en að frádregnum eigna- og tilfærsluútgjöldum.

Heildartekjur heimilageirans árið 2017 jukust um 9,2% frá fyrra ári. Þar af jukust heildar launatekjur um 8,4%, eignatekjur um 13,9% og rekstrarafgangur vegna eigin eignarhalds um 5,8%. Heildartilfærslutekjur jukust um 13,2% milli ára.

Heildareigna- og tilfærsluútgjöld jukust um 9,0%, þar af jukust tilfærsluútgjöld um 10,6% en eignaútgjöld drógust saman um 2,8%.