Launavísitala í febrúar 2011 er 383,9 stig og hækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 4,2%. Hagstofan birtir gögn um launavísitöluna í dag.

Kaupmáttur launa lækkaði um 1,0% frá fyrri mánuði

Vísitala kaupmáttar launa í febrúar 2011 er 107,1 stig og lækkaði um 1,0% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 2,2%.