Vísitala launa hækkaði um 0,2% á milli mánaða í ágúst. Hún stendur nú í 458,6 stigum. Síðastliðna tólf mánuði hefur hún hækkað um 5,7%, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar .

Fram kemur á vef Hagstofunnar að vísitala kaupmáttar launa hafi á sama tíma lækkað um 0,1% á milli mánaða. Á síðustu tólf mánuðum hafi vísitalan hækkað um 1,3%.

Þróun launavísitölu og vísitala launa síðastliðna tólf mánuði. VB MYND/Hagstofan.
Þróun launavísitölu og vísitala launa síðastliðna tólf mánuði. VB MYND/Hagstofan.
Þróun launavísitölu og vísitala launa síðastliðna tólf mánuði. VB MYND/Hagstofan.