Launavísitalan hækkað um 0,3% á milli mánaða í nóvember og jafngildir það því að launavísitalan hafi hækkað um 9% síðastliðna tólf mánuði á undan, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar.
Vísitala kaupmáttar launa hækkaði sömuleiðis um 0,3% á milli mánaða. Vísitalan hefur hins vegar hækkað talsvert minna en launavísitalan á milli ára, eða um 3,6%.
Munurinn sést berlega á stöplaritinu frá Hagstofu Íslands.