Árið 2015 jukust ráðstöfunartekjur heimilisgeirans um 10,8% frá árinu 2014. Ráðstöfunartekjur á mann jukust um 9,6% milli ára og kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann jókst um 7,9%. Þetta segir á vef Hagstofunnar .

„Ráðstöfunartekjur heimilanna má skilgreina sem samtölu launatekna, eignatekna, tilfærslutekna og reiknaðs rekstrarafgangs einstaklingsfyrirtækja en að frádregnum eigna- og tilfærsluútgjöldum“ segir í fréttinni.

Heildartekjur heimilageirans jukust einnig um 9,5% milli áranna 2014 og 2015. Þar af var 10,7% aukning á heildarlaunatekjum. 12,9% aukning var á heildareignatekjum og 11,4% aukning var á rekstrarafgangi einstaklingsfyrirtækja.