Samkvæmt tölum Hagstofunnar hækkaði launavísitalan um 0,2% milli janúar og febrúar. Breytingin á ársgrundvelli var 5,6% sem er minnsta ársbreyting frá maí 2015. Hækkunartaktur launa á ársgrundvelli hafði verið nokkuð stöðugur í rúmlega 7% í u.þ.b. ár, frá vori 2017 fram á vor 2018, en lækkaði þá niður í kringum 6% og hefur lækkað eilítið síðan. Launavísitalan hækkaði um 6,1% milli 4. ársfjórðungs 2017 og sama tíma 2018. Greint er frá þessu í nýrri Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans.

Þá kemur fram að kaupmáttur launa hafi verið stöðugur undanfarna mánuði, og verið 2,2% meiri í febrúar en í febrúar árið áður. Frá áramótum 2014/2015 hafi kaupmáttur launavísitölu aukist um rúm 24%, eða u.þ.b. 7% á ári. Það sé verulega mikil aukning, bæði sögulega séð og í samanburði við önnur lönd. Á árum áður hafi staðan oft verið sú að sú aukning kaupmáttar sem náðist í upphafi samningstímabils hafi verið horfin í lok þess, og stundum gott betur. Síðasta samningstímabil sé því einstakt að þessu leyti, bæði hvaða árangur hafi náðst og hversu vel hafi tekist að varðveita kaupmáttinn.

Launahækkanir áþekkar á almenna og opinbera markaðnum

Sé litið á launabreytingar stóru hópanna á vinnumarkaði á einu ári, frá 4. ársfjórðungi 2017 til 4. ársfjórðungs 2018, megi sjá að launahækkanir á almenna og opinbera markaðnum hafi verið áþekkar, eða rúm 6%. Laun starfsmanna ríkisins hafi hækkað mest en laun hjá sveitarfélögum minnst.

Nú um mánaðamótin hafi svo flestir kjarasamningar á opinbera vinnumarkaðnum runnið út, þannig að endurnýja þurfi samninga á nær öllum markaðnum. Þá hefjist jafnan mikil umræða um samanburð milli hópa. Sagan sýni ótvírætt að launaþróun á opinbera og almenna markaðnum sé mjög svipuð til lengri tíma litið. Yfir styttri tímabil sé alltaf um einhverjar sveiflur að ræða en þær jafnist alla jafna út. Sé miðað við breytingu frá upphafi ársins 2015 höfðu laun opinberra starfsmanna hækkað um 35,4% á meðan þau höfðu hækkað um 34,6% á almenna markaðnum. Munurinn á þeim tímapunkti hafi því einungis verið 0,6 prósentustig. Því megi slá því föstu að laun stóru hópanna á vinnumarkaði hafi þróast með nánast sama hætti síðustu fjögur ár.