Þinglýstum samningum með fasteignir fjölgaði í febrúar sl., bæði miðað við janúarmánuð og febrúar í fyrra. Samkvæmt frétt á vef Þjóðskrár var alls 280 samningum þinglýst nú í febrúar á höfuðborgarsvæðinu og þar af vörðuðu 260 þeirra íbúðarhúsnæði. 219 samningum var þinglýst í janúar og 186 í febrúar í fyrra. Velta í fasteignaviðskiptum jókst að sama skapi um 25,5% á milli mánaða og 36,6% á milli ára.

Hvað Akureyri, Reykjanesbæ, Árborg og Akranes varðar þá fækkaði þinglýstum kaupsamningum í öllum fjórum bæjarfélögum.