Helstu lánardrottnar Kaupthing Bank í Lúxemborg samþykktu í dag í atkvæðagreiðslu nýja áætlun um endurskipulagningu bankans sem unnin var í samráði við Blackfish Capital Management Limited sem er fjármálafyrirtæki í eigu Rowland fjölskyldunnar í Bretlandi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kaupthing Bank í Lúxemborg en lánadrottnar, sem eiga 98% af útistandandi kröfum, samþykktu samkomulagið auk þess sem 23 af 25 bönkum sem um ræðir samþykktu það. Í báðum tilvikum þurfti samþykki meirihluta til að samkomulagið öðlaðist gildi.

Fram kemur í tilkynningunni að með ofangreindu samþykki er ljóst að allir viðskiptavinir Kaupthing Bank Luxembourg í Belgíu, Sviss, Lúxemborg, um 23 þúsund viðskiptavinir fá innstæður sínar að fullu greiddar. Íslenska ríkið tekur ekki á sig neinar skuldbindingar né leggur til neina fjármuni vegna endurskipulagningar bankans.

Þá kemur fram að Rowland fjölskyldan hefur verið viðloðandi fjárfestingar og fjármálaumsýslu frá því um 1960 og rekur skrifstofur í London og á Guernsey.

„Tilgangur fjölskyldunnar með yfirtöku á bankanum er að bjóða hefðbundna bankastarfsemi á sviði eignastýringar og einkabankaþjónustu meðal annars til íslenskra viðskiptavina,“ segir í tilkynningunni.

Kaupthing Bank Luxembourg óskaði eftir greiðslustöðvun þann 9. október sl. en síðan þá hafa yfirvöld í Lúxemborg, þarlendir umsjónarmenn greiðslustöðvunarinnar ásamt framkvæmdastjórn bankans og skilanefnd Kaupþings hf. unnið að endurskipulagningu bankans til að tryggja eignir viðskiptavina.

Greiðslustöðvun bankans rennur út þann 8. júní en samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins verður sótt um nokkurra vikna framlengingu til að ganga frá ýmsum málum sem viðkoma bankanum. Að henni fenginni verður endurreisn bankans undirbúin. Nýir eigendur stefna að því að opna bankann undir nýju nafni í byrjun júlí en tíminn þangað til verður nýttur til að undirbúa formlega opnun hins nýja banka.