Dómur í markaðsmisnotkunarmáli sérstaks saksóknara gegn Kaupþingi verður kveðinn upp um næstu mánaðamót. Þetta herma heimildir Viðskiptablaðsins.

Í dag eru fjórar vikur liðnar síðan aðalmeðferð í málinu lauk, en lögum samkvæmt skal dómari alla jafna kveða upp dóm innan fjögurra vikna frá aðalmeðferð. Það hefur hins vegar áður þekkst að slíkt frestist.

Níu fyrrverandi starfsmenn Kaupþings eru ákærðir í málinu, en það eru Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson, Ingólfur Helgason, Einar Pálmi Sigmundsson, Birnir Sær Björnsson, Pétur Kristinn Guðmarsson, Magnús Guðmundsson, Bjarki H. Diego og Björk Þórarinsdóttir. Eru þau sökuð um að hafa haldið gengi hlutabréfa bankans uppi meðan halla tók undan á mörkuðum haustið 2008.