Dæmt verður í skuldamáli Steingríms P. Kárasonar, fyrrverandi forstöðumanns áhættustýringar hjá Kaupþingi, í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Um er að ræða deilu um lán sem Steingrímur fékk hjá bankanum til kaupa á hlutabréfum á sínum tíma. Nær allir fyrrverandi samstarfsfélagar Steingríms úr röðum yfirstjórnar Kaupþings hafa verið dæmdir til að greiða háar fjárhæðir vegna lána sem þeir fengu til kaupa á hlutabréfum í bankanum. Nokkuð er misjafnt hvort greiðslan er látin nema 10% af upphæðinni sem þeir voru persónulega ábyrgir fyrir eður ei en dómarnir hafa miðað við hvort um slíkt var kveðið á um í lánasamningum.

Steingrímur var á meðal launahæstu starfsmanna Kaupþings á sínum tíma og stóðu lánveitingar til hans tæpum 2,3 milljörðum króna árið 2008. Rétt fyrir fall Kaupþings í október 2008 ákvað stjórn bankans að aflétta persónulegri ábyrgð starfsmanna á lánum sem bankinn veitti þeim. Skilanefnd Kaupþings sem tók við af bankastjórninni rifti þeirri ákvörðun og krafði starfsmennina um endurgreiðslu fjárins.

Það er Arion banki sem stefndi Steingrími í málinu sem dæmt verður í á morgun þótt Kaupþing hafi veitt lánið á sínum tíma. Ástæðan fyrir því mun vera sú að Arion banki og þrotabú Kaupþings skiptu kröfum á fyrrverandi starfsmenn bankans sem fengu lán til hlutabréfakaupa á milli sín. Ekki liggja fyrir upplýsingar um það hvernig sú uppskipting var ákveðin.

Dæmdir til að endurgreiða milljarða

Sem dæmi var Ingvar Vilhjálmsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðsviðskipta Kaupþings, dæmdur í héraðsdómi árið 2011 til að endurgreiða þrotabúi Kaupþings 2,6 milljarða króna sem hann hafði fengið að láni á sínum tíma. Því til viðbótar var Hannes Frímann Hrólfsson, fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri markaðsviðskipta Kaupþings, var svo dæmdur í nóvember í fyrra til að endurgreiða bankanum tæpan 1,1 milljarð króna. Fleiri hafa fengið á sig sambærilega dóma, endurgreiðslur upp á hundruð milljóna króna. Þar á meðal eru Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, og Magnús Guðmundsson, bankastjóri Kaupþings í Lúxemborg.