Samkeppnisyfirvöld í Bretlandi hafa samþykkt yfirtöku Bakkavör Group á New Primebake Ltd. án athugasemda og er yfirtöku félagsins á New Primebake þar með lokið.

New Primebake starfrækir eina verksmiðju í Nantwich, Cheshire og er með með 340 starfsmenn. Félagið framleiðir kældar brauðvörur eins og ýmsar tegundir hvítlauksbrauðs, ciabatta og foccacia. Helstu viðskiptavinir félagsins eru stórmarkaðir í Bretlandi og er framleiðslan öll undir þeirra vörumerkjum.