Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur lagt það fyrir Samkeppniseftirlitið að taka að nýju til athugunar hvort unnt sé að setja kaupum Landsbankans á eignarhlut í Verdis skilyrði

Þetta kemur fram á vef Samkeppniseftirlitsins en sem kunnug er hafði stofnunin áður ógilt kaup Landsbankans á eignarhlut í Verdis hf. (áður Arion verðbréfavarsla). Í samrunanum fólst m.a. að Landsbankinn og Arion banki færu saman með yfirráð í Verdis sem er ráðandi félag á markaði fyrir verðbréfaumsýslu. Var samruninn talinn raska samkeppni með alvarlegum hætti.

Samrunaaðilar kærðu ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem nú hefur ógilt ákvörðunina.

„Áfrýjunarnefnd tekur ekki afstöðu til efnisþátta málsins í úrskurði sínum en leggur fyrir Samkeppniseftirlitið að taka að nýju til athugunar hvort unnt sé að setja samrunanum skilyrði,“ segir á vef Samkeppniseftirlitsins.

„Kemst áfrýjunarnefndin að þeirri niðurstöðu að áfrýjendur hafi haft réttmæta ástæðu til að ætla að þeirri meðferð sem hafin var undir rekstri málsins til þess að freista þess að setja samrunanum viðunandi skilyrði hafi ekki verið lokið er ákvörðunin var tekin.“

Þá kemur fram að málsaðilar fái stuttan frest til að setja fram endanlegar tillögur um skilyrði fyrir samrunanum af sinni hálfu á grundvelli þeirra markmiða sem Samkeppniseftirlitið telur að verði að nást til að fullnægja þeim samkeppniskröfum sem gerðar eru.