Avion Group hefur lokið yfirtöku á Atlas fyrir 630 milljónir kanadíska dollara (37,8 milljarða króna), segir í tilkynningu.

Kaupin eru fjármögnuð með láni frá Royal Bank of Canada að upphæð 260 milljónir kanadískra dollara (15,6 milljarða króna), láni frá KingStreet að upphæð 130 milljónir kanadískra dollara (7,8 milljarðar króna ) og eigin fé frá Avion Group að upphæð 230 milljónir kanadískra dollara (13,8 milljarðar króna), þar af eru 100 milljónir kanadískra dollara (6 milljarðar króna) í víkjandi láni frá KingStreet.

Avion Group áformar að selja hluta af eignum Atlas á næstu 18 mánuðum. Áætlað markaðsviði eignanna er á bilinu CAD 500 (30 milljarðar króna) til 600 (36 milljarðar króna) milljónir. Bókfært virði er CAD 450 milljónir (27 milljarðar króna).