Samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar hafa Alfesca og Icelandic Group komist að samkomulagi um kaupverð á frystisviði Delpierre (áður SIF France). Kaupverðið sem Icelandic Group greiðir er 17 milljónir evra eða um 1,6 milljarðar íslenskra króna. Skrifað var undir formlegan kaupsamning síðdegis í gær.

Þetta er í samræmi við tilkynningu til Kauphallar þann 7. júlí síðastliðinn þar sem fram kom að aðilar væru langt komnir með að ljúka samningum sín á milli.


Um er að ræða kaupsamning er varða verksmiðjuhús, tæki og áhöld, veltufjármuni auk viðskiptasambanda. Icelandic Group yfirtekur jafnframt samninga við starfsfólk verksmiðjunnar en í verksmiðjunni starfa um 300 manns.


Velta frystisviðs Delpierre var um 50 milljónir Evra eða 4,7 milljarðar króna á síðastliðnu rekstrarári og framleidd voru um 17.000 tonn af afurðum en þær hafa aðallega verið seldar á Frakklandsmarkaði.


Samningsaðilar gera ráð fyrir að formleg yfirtaka Icelandic Group á verksmiðjunni fari fram á næstu vikum en salan er háð samþykki þar til bærra yfirvalda. Við það tækifæri munu félögin gera ítarlega grein fyrir áhrifum kaupanna á rekstur og efnahag félaganna.