Tónlistarmaðurinn Kayne West hyggst bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna. Frá þessu greinir hann seint í gærkvöldi á Twittersíðu sinni en kosningarnar fara fram 3. nóvember næstkomandi. Elon Musk hefur lýst yfir stuðningi við framboð hans.

Ekki er ljóst hvort West hafi fyllt út nauðsynleg gögn til þess að vera kjörgengur en skilafrestur til þess hefur ekki runnið út í mörgum fylkjum. Hann birti engar frekari upplýsingar um framboð sitt.

West lýsti yfir stuðningi við Donald Trump Bandaríkjaforseta árið 2018. Síðar sagði hann hafa gert það til að hæðast að Demókrötum og öðrum listamönnum, sem flestir styðja Demókrata.