KB banki hefur ákveðið að hækka vexti óverðtryggðra inn- og útlána frá og með 1. febrúar. Í tilkynningu bankans kemur fram að vaxtabreytingin er gerð í kjölfar tilkynningar Seðlabankans fyrr í vikunni um hækkun stýrivaxta um 0,25 prósentustig.

Vextir óverðtryggðra útlána hækka um 0,25 prósentustig. Þannig hækka kjörvextir óverðtryggðra skuldabréfa úr 12,70% í 12,95%.

Vextir óverðtryggðra innlána hækka á bilinu 0,20 til 0,25 prósentustig, mismunandi eftir innlánsformum. Þannig hækka vextir Kostabókar og Markaðsreiknings um 0,25 prósentustig og verða þeir á bilinu 6,25% til 9,40%.

Ekki er um breytingu að ræða á verðtryggðum vöxtum.