KB banki hefur ákveðið að hækka vexti óverðtryggðra inn- og útlána frá og með 11. nóvember. Vaxtabreytingin er gerð í kjölfar tilkynningar Seðlabankans um hækkun stýrivaxta um 0,50 prósentustig. Vextir óverðtryggðra útlána hækka um 0,25 prósentustig. Þannig hækka kjörvextir óverðtryggðra skuldabréfa úr 9,40% í 9,65%.

Vextir óverðtryggðra innlána hækka um allt að 0,25 prósentustig, þó mismunandi eftir innlánsformum. Þannig hækka vextir Kostabókar og Markaðsreiknings um 0,25 prósentustig og verða þeir á bilinu 3,75% til 6,20%.

Bankinn breytir ekki vöxtum verðtryggðra inn- og útlána.