KB banki hefur ákveðið að lækka vexti verðtryggðra inn- og útlána frá og með 1. september næstkomandi um 0,25 til 0,30 prósentustig. Verðtryggðir kjörvextir skuldabréfalána munu lækka um 0,25% og verða 5,20%. Vextir á innlánsreikningum lækka um 0,25% til 0,30% mismunandi eftir innlánsformun.

Nefna má að innlánsvextir á verðtryggðum 48 mánaða reikningi lækka um 0,30% og verða eftir breytingu 3,90% en vextir lífeyrisbókar lækka um 0,25% og verða 5,90%.

Í tilkynningu bankans kemur fram að ákvörðunin um vaxtalækkun nú er tekin í ljósi þess að verðtryggðir markaðsvextir til langs tíma hafa verið að lækka og tekur bankinn meðal annars mið af þeirri þróun við sínar vaxtaákvarðanir.