Kaupþing Banki hf. hefur flaggað viðskiptum með fimm milljóni hluta í Mosaic Fashions hf. sem bankinn hefur nú selt. Eftir viðskiptin á KB banki 285.683.393 hluta sem jafngildir 9,85% af heildarhlutafé í Mosaic. Bréf í félaginu hafa lækkað um 1,15% það sem af er degi.