Þrátt fyrir óvissu um framþróun mála á fjármálamarkaði verður áfram kannaður möguleikar á aðkomu KEA að rekstri Sparisjóðs Höfðhverfinga, í nánu samstarfi við Fjármálaeftirlitið.

Þetta kemur fram á vef KEA.

KEA og Sparisjóður Höfðhverfinga gerðu með sér samkomulag fyrr á árinu að KEA myndi kaupa stofnbréf í sparisjóðnum. Málið hefur verið í stöðugri vinnslu síðan þá í samstarfi við Fjármálaeftirlit.

Málið var á lokastigum þegar bankakreppan skall á fyrir nokkrum dögum.

„Ljóst er að með nýju lögunum um ráðstafanir vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði og ástandi fjármálamarkaða almennt, blasir við aðilum allt annað umhverfi en lagt var upp með,“ segir á vef KEA.