Í framhaldi af stofnfjáraðilafundi Sparisjóðs Höfðhverfinga (SH) hefur KEA gert samning um kaup á öllu stofnfé í sjóðnum með fyrirvara um samþykki Fjármálaeftirlitsins.

Sparisjóður Höfðhverfinga er einn elsti sparisjóður landsins, stofnaður 1879. Í framhaldinu er gert ráð fyrir því að auka eigið fé sparisjóðsins verulega til þess að efla sjóðinn.

Það liggur fyrir að núverandi stofnfjáraðilar munu að einhverju leyti endurfjárfesta í sjóðnum, sem og fjársterk fyrirtæki á starfssvæði sjóðsins og víðar. Í tengslum við þessi viðskipti verður núverandi starfsstöð fest í sessi á Grenivík.

Í framhaldinu af þessum viðskiptum og hlutafélagavæðingu sparisjóðsins verður til sjálfseignarstofnun sem mun ráðstafa arði til menningar- og líknarmála á starfssvæði sparisjóðsins.

Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, er ánægður með þennan samning. „Það er markmið okkar að auka verulega eigið fé sjóðsins enda ekki hægt að nálgast verkefnið öðruvísi þar sem um er að ræða minnsta sparisjóð landsins," sagði Halldór.

Eigið fé SH er nú 200 milljónir króna. Halldór sagði að KEA hefði viljað fjárfesta og koma að eflingu og uppbyggingu fjármálafyrirtækja á starfssvæði sínu. Þetta er verkefni í þá veru og ekki það fyrsta, en KEA var einn stofnenda Saga Capital fjárfestingarbanka á sínum tíma